Rosalega einföld, fljótleg og góð uppskrift af bollum sem eru bæði sykur og gerlausar. Þær henta vel með súpum, pottréttum eða bara með kaffinu og góðu áleggi á góðum degi.
300 g gróft spelt
100 g tröllahafrar (má nota venjulegt haframjöl líka)
4 tsk vínsteinslyftiduft
1 tsk gróft sjávarsalt
100 g fræblanda, t.d. sólblómafræ, hörfræ, sesam.
4 1/2 dl lífræn AB mjólk, lífræn jógúrt eða grísk jógúrt
1 msk olía
Blanda öllum hráefnum saman í skál, hnoða svo betur saman á borði. Móta bollur úr deiginu. Ég fæ um 12 góðar bollur úr þessu. Pensla með mjólk eða eggi og strá aðeins af fræjum yfir.
Baka bollurnar við 200° C í ca. 20 mínútur.