Vöfflur eru alltaf góðar. Það er líka svo auðvelt að hollustuvæða hina hefðbundnu vöffluuppskrift. Ég hef nokkrum sinnum fengið mér vöfflur í morgunmat. Hollar og góðar heimagerðar vöfflur eru til dæmis mun betri kostur heldur en mörg af brauðunum sem við kaupum út í búð í góðri trú. Það er líka svo margt hægt að setja ofan á vöfflurnar, þær þurfa ekki alltaf að vera með sultu og rjóma. Best finnst mér að nota ferska ávexti í bitum og rífa síðan örlitið dökkt súkkulaði yfir. Ef ég nota sultu kaupi ég sykurlausar sultur t.d. frá St. Dalfour eða að ég nota heimatilbúnar sykurminni sultur. Svo er rjóminn auðvitað alltaf góður með vöfflunum, en hann er ekki nauðsynlegur. Ég mæli með því að prófa að nota kókosrjóma, en hann er hægt að gera með því að geyma kókosmjólk í kæli, þá skilur hún sig að þannig að rjóminn stífnar en safanum er hellt frá. Svo er bara að hræra vel í rjómanum til að hann verði aðeins loftkenndari. (Það þýðir ekki að nota light kókosmjólk í þetta). Vöffluuppskriftin sem hér fylgir er sú grunnuppskrift sem ég nota oftast, en stundum geri ég smá breytingar á henni. T.d. skipti út hluta af speltinu fyrir malað haframjöl, eða annað mjöl. Set jafnvel fræ út í degið. Sólblómafræ eru til dæmis mjög góð með. Nota mismunandi mjólkurtegundir fer bara eftir því hvað er til. Eins er gott að skipta út hluta af smjörinu fyrir kókosolíu. Ég hef líka prófað að setja einn vel þroskaðan banana út í, en á móti sleppt þá agave sýrópinu. Það er bara um að gera að prófa sig áfram. Þessi uppskrift dugar vel fyrir okkur fjölskylduna en við erum fjögur. Svo er bara að margfalda þegar það koma gestir ;)
2 egg
1 msk agave
250 g spelt (helst gróft)
2 tsk vínsteinslyftiduft
1 tsk vanilluduft (má líka setja smá kardimommur með)
ca. 4 dl léttmjólk (má nota soyamjólk líka og jafnvel fleiri gerðir)
80 g smjör (ekki verra að nota kókosolíu að hluta)
Hræra saman eggin og sýrópið. Bæta þurrefnum út í og síðan mjólkinni, og hrært rólega þar til degið er orðið mátulega þykkt. Að lokum er smjörið brætt og því bætt við degið. Svo er bara að skella þessu á vöfflujárnið.
Thursday, August 23, 2012
Hollari vöfflur
Labels:
Brauð og fleira,
Kökur og sætindi,
Morgunverður
Saturday, August 11, 2012
Rifsberjahlaup - minni sykur
Þó ágúst sé ekki langt komin eru rifsberin í garðinum hjá mér hér í Noregi orðin vel þroskuð og rauð. Eiginlega er það þannig að þau liggja fyrir skemmdum. Við krakkarnir drifum okkur því út að tína. Ég geri nú oft rifsberjahlaup á haustin, en alltaf með vænum skammti af sykri. Nú ákvað ég að fara í smá tilraunastarfsemi og reyna að útbúa hlaupið með minni sykri og jafnvel án þess að nota hvítan unninn sykur. Úr varð að ég prófaði að nota Xylo Sweet (xylitol) sem er náttúrulegur sykur og hefur ekki eins mikil áhrif á blóðsykur og venjulegur sykur. (mætti jafnvel líka nota pálmasykur). Ásamt því notaði ég nokkrar döðlur og epli til að fá sætara og betra bragð. Þar sem berin hjá mér voru orðin svo rosalega rauð og engin græn ber að finna á runnanum, varð ég að sjóða hlaupið upp aftur og bæta örlitlum hleypi í, en heima á Íslandi hef ég aldrei þurft að nota hleypi. Úr varð þetta fína rifsberjahlaup, þar sem rifsberjabragðið nýtur sín vel og ekki of sætt.
2 kg. rifsber (með stilkum og jafnvel laufum)
2-3 epli gróflega skorin
800 g xylo sweet (fæst í hagkaup og í heilsubúðum)
100-200 g döðlur
Rifsberin sett í pott ásamt xylo sweet, döðlum og eplum. Hræra vel í og leyfa þessu að malla í nokkrar mínútur eða þar til allt er orðið vel maukað. Þá er að sía vökvann frá hratinu. Best er að nota taubleyju, eða gott viskastykki og binda yfir pott. Leyfa þessu að standa í nokkra tíma. Hratið geymi ég svo og síð upp aftur og bý til saft.
Þegar vökvinn hefur síast frá, síð ég hann upp aftur, bæti í smá sætu ef þörf er á og eins hleypi ef þess þarf. Skelli þessu svo í litlar krukkur og leyfi hlaupinu að kólna þar. Ef það hleypur ekki er hægt að sjóða upp aftur og bæta í hleypi.
Hratið set ég svo í pott og bæti við vatni þannig að fljóti aðeins yfir. Leyfi þessu að malla í smá stund við vægan hita. Bæti í sætu ef þarf. Sía hratið þá aftur frá og helli vökvanum í flösku eða könnu. Þetta er hinn fínasti sumardrykkur. Það er svo bara smekksatriði hvort hann er þynntur frekar með vatni eða ekki. Mér finnst gott að blanda þessu út í sódavatn og bera fram með vel kalt með klaka.

Meðlæti
Saturday, June 23, 2012
Ferskur og grænn þeytingur
Morgunstund gefur gull í mund ekki satt. Og morgunverðurinn er mikilvægasta máltíð dagsins. Ég hef núna síðastliðinn vetur verið að prófa nokkrar tegundir af "smoothies" en finnst alveg með ólíkindum hversu oft það er í uppskriftum sem maður finnur á netinu að það er verið að bæta sykri eða hunangi út í drykkinn alveg að óþörfu. Ef maður notar sætan ávöxt með í drykkinn þá á yfirleitt ekki að þurfa að setja frekari sætuefni út í.
Ég hef verið algjör gikkur að prófa græna drykki þar. Gat bara ekki ýmindað mér að drekka grænmetið mitt. Eftir talsvert fikt og nokkrar prufur fann ég minn græna smoothie. Meira að segja dóttir mín elskar þennan drykk. Aðaluppistaðan er spínat, sem er frekar bragðmilt og leyfir ávaxtabragðinu að njóta sín í drykknum. Spínatið er hins vegar bráð hollt, inniheldur bæði trefjar og prótein ásamt því að vera ríkt af K og A vítamíni og eins af C vítamíni. Spínatið inniheldur líka mikið af nauðsynlegum steinefnum eins og kalki og magnesíum. Spínat er talið vinna gegn krabbameini og hefur andoxunaráhrif. Hver man ekki eftir Stjána bláa og spínatinu. Í drykkinn nota ég svo banana og peru, til að fá sætt og gott bragð. Ég nota líka frosin vínber. Frosin vínber eru algjört æði, þannig að fyrir ykkur sem ekki hafa prófað þau, þá mæli ég með að kippa með ferskum vínberjum í næstu búðarferð, skola þau og skella í frystinn. Börnin stelast í þetta eins og nammi.
1 lúka ferskt spínat
1/2 - 1 banani
1/2 pera
safi úr 1/2 appelsínu
smá sítrónusafi (1 msk kanski)
frosin vínber nokkur stk. Má samt sleppa og setja smá klaka útí í staðin.
Þá er bara að skella öllu í blandarann og græna blandan er tilbúin.
Hugsanlega verður eitthvað minna af póstum frá mér næstu vikurnar, þar sem að fjölskyldan stendur í flutningum og því minni tími fyrir tilraunir í eldhúsinu. En ég mæti hress aftur á bloggið í byrjun ágúst með nýjar og hollar uppskriftir frá nýja norska eldhúsinu mínu. Þangað til þá, hafið það gott og njótið sumarsins :)

Drykkir,
Morgunverður
Sunday, May 13, 2012
Kjúklingur í kryddaðri smjörsósu
Nýlega las ég grein á netinu þar sem fjallað var um muninn á hreinu smjöri og smjörlíki. Smjörlíki var upphaflega framleitt sem svínafóður, en þar sem það gekk ekki sem skildi var reynt að breyta því þannig að það hentaði til manneldis. Vissuð þið að smjörlíki er einu mólíkúli frá því að vera plast. Allavega ég hef forðast smjörlíki í dáldinn tíma og sakna þess ekkert. Í langflestum tilfellum er hægt að nota íslenskt smjör í staðin fyrir smjörlíkið og jafnvel kókosolíu.
Uppskriftin hér á eftir er mín útgáfa af svona butter chicken. Auðvitað mun hollara en að kaupa krukku af butter chicken sósu úti í búð. Þið aðlagið kryddmagnið bara að ykkar smekk. Mér finnst gott að hafa dáldið mikið kryddbragð en vil ekki hafa réttinn of sterkan samt.
2 msk smjör
800 - 1000 g kjúklingabringur, lundir eða læri skorið í bita
Bræða smjör á pönnu og brúna kjúklinginn í nokkrar mínútur.
2 msk smjör
2 tsk garam masala
2 tsk paprika
2 tsk kóríander
1 msk rifinn ferskur engifer
1/4 tsk chili duft
1 1/2 - 2 tsk kanill
1 1/2 - 2 tsk kardimommur
Bræða smjörið á pönnunni og bæta öllu kryddi út á og blanda vel saman við smjörið. Leyfa að malla í 1-2 mínútur eða þar til ilmurinn stígur vel upp. Setja kjúklinginn aftur á pönnuna og blanda við kryddblönduna.
1 dós niðursoðnir tómatar
Bæta niðursoðnum tómötum á pönnuna og leyfa að malla í nokkrar mínútur.
1 dós kókosmjólk
1 msk sítrónusafi
Setja kókosmjólk og sítrónusafa út á pönnuna. Blanda vel og leyfa að malla í 15 mínútur.
Bera fram með brúnum hrísgrjónum, sætum kartöflum og góðu salati.

Kjöt,
Kjúklingur
Tuesday, May 8, 2012
Krydduð blómkáls- og tómatsúpa
Blessuð börnin mín líða stundum fyrir það að eiga hollustuóða mömmu. Í góða veðrinu í dag var angandi ilmur af grilluðum pylsum um allt hverfið. Spurningin "mamma... hvað er í matinn" kom auðvitað í kjölfarið. Ég get svo svarið það að það eru meiri líkur á því að þessi spurning komi á hverjum degi heldur en líkurnar eru á því að sólin komi upp dag hvern. Það stóð heldur ekki á svari hjá mömmunni: "Grænmetissúpa í kvöld, holl og góð". Vonsvikin börnin spyrja auðvitað hvort við getum ekki haft pylsur. Hollustuóða mamman kemur þá auðvitað með sína venjulegu ræðu um að það sé nú miklu betra að fá hollan og góðan mat sem er fullur af nauðsynlegum næringarefnum en ekki fullur af alls konar aukaefnum sem fara illa með líkamann. Börnin eru farin að átta sig á því að það þýðir ekkert að ræða þetta nánar þegar mamman kemur með þessa ræðu.
Í dag var því matreidd holl og góð blómkáls- og tómatsúpa. Það tókst mjög vel til í þetta skiptið og þrátt fyrir orðaskiptin við börnin áður, þá borðuðu þau súpuna með bestu lyst. Hin grænmetisfælna dóttir mín hreinlega skóflaði í sig þremur skálum af súpu. Galdurinn var bragðgóð súpa og eitt soðið egg ofan í súpuskálina. Súpan er stútfull af næringarefnum, seðjandi, bragðgóð með mjúka áferð. Í súpunni er meðal annars blómkál sem er ríkt af B-vítamínum, fólínsýru og C-vítamíni. Það síðastnefnda C-vítamínið hefur meðal annars það hlutverk að vernda líkamann gegn sindurefnum sem skaðað geta frumur, prótein og vefi. Í blómkáli eru jafnframt efni sem talin eru geta komið í veg fyrir myndun krabbameins.
1 msk kókosolía
1 laukur skorinn
3 hvítlauksrif skorin smátt
1 tsk engifer rifinn
2 tsk karrý (má vera aðeins meira ef þið viljið meira bragð)
1 tsk cumin duft
hnífsoddur chili krydd
1/2 meðalstór sæt kartafla skorin í litla bita
2 meðalstórar gulrætur skornar í bita
salt
pipar nýmalaður
3 bollar vatn
3 msk grænmetiskraftur
1 dós kókosmjólk (lite)
1 dós niðursoðnir tómatar
1 blómkálshaus í minni kantinum (svona rúmlega hálfur haus af þeim sem oftast eru í búðinni)
1 soðið egg á mann
steinselja fersk
Mýkja lauk, hvítlauk og engifer í olíunni í smá stund. Bæta kryddinu við og leyfa þessu að malla í 1-2 mínútur. Hræra vel í á meðan.
Bæta við sætum kartöflum og gulrótum, ásamt vatni og krafti. Leyfa suðunni að koma upp. Setja þá kókosmjólk og niðursoðna tómata út í. Sjóða við vægan hita í um það bil 15 mínútur, eða þar til grænmetið er orðið mjúkt.
Setja smátt skorið blómkálið út í pottinn og sjóða nokkrar mínútur til viðbótar. Smakka svo bara súpuna til.
Það er auðvitað hægt að bera súpuna fram svona með grænmetinu grófsöxuðu. Ég hins vegar ákvað að mauka súpuna þar sem að ég er mikið fyrir að fara í feluleik með grænmetið fyrir hin grænmetisfælnu börn. Áferðin á súpunni verður líka svo silkimjúk. Hægt er að mauka súpuna með töfrasprota, í blandara eða matvinnsluvél.
Ég bar súpuna fram með soðnu eggi, steinselju og setti örlítið af lífrænni grískri jógúrt með.

Súpur
Subscribe to:
Posts (Atom)