Fljótlegur og þægilegur réttur.
kaldpressuð jómfrúarolía
800 - 1000 g ýsuflök í bitum
2 tómatar skornir í sneiðar
1/2 paprika skorin í þunnar sneiðar
1/2 laukur skorinn í þunnar sneiðar
1-2 hvítlauksrif marin
2 msk saxaðar ferskar jurtir s.s. basilika, timian og steinselja (má líka nota þurrkað)
svartur pipar
Bera olíu í eldfast mót og raða fiskbitunum í formið. Setja grænmeti og lauk yfir ásamt kryddi. Enda á að setja smá olíu yfir. Bakað við 230° í 10-15 mínútur. Borið fram með hýðisgrjónum og salati.
Tuesday, January 24, 2012
Sítrónulegnir ýsubitar
Þetta er tilbrigði við hina hefðbundnu steiktu ýsu, bara aðeins hollara.
800 - 1000 g ýsuflök skorin í ca. 4 cm breiða bita.
safi úr 1 sítrónu
Fiskbitarnir eru látnir liggja í sítrónusafanum í u.þ.b. klukkutíma.
2 dl gróft spelt
salt
pipar
Blanda þessu öllu saman og velta fiskbitunum upp úr blöndunni.
Steikja bitana upp úr blöndu af smjöri og kókosolíu.
Bera fram með ofnbökuðum sætum kartöflum og salati.

Labels:
Fiskur
Subscribe to:
Posts (Atom)