Botn:
1 bolli möndlur
1 bolli döðlur
1 bolli rúsínur eða aðrir þurrkaðir ávextir
Láta döðlur og rúsínur standa í volgu vatni í stutta stund. Láta mesta vökvann renna af og setja í matvinnsluvél ásamt möndlum og vinna vel þar. Þrýsta blöndunni vel ofan í mót.
2 bananar
Skornir í bita og raðað ofan á botninn.
Krem:
2 bananar
1/4 -1/2 bolli vatn
1 bolli kókosmjöl
6-8 döðlur sem legið hafa í bleyti
1 tsk vanilluduft
1-2 tsk hunang ef þarf
Blanda öllu vel saman í matvinnsluvél. Ég bæti aðeins vatni í ef ég vil hafa blönduna þynnri. Betra að byrja með ekki of mikið vatn. Ef bananarnir eru vel þroskaðir finnst mér alveg óþarfi að setja hunang í kremið. En það er auðvitað bara smekksatriði hversu sætt þið viljið hafa þetta.
Blandan er svo sett yfir botninn.
Þá er bara að skreyta með ávöxtum og því sem manni dettur til hugar og til er í skápunum hverju sinni. Ég notaði jarðaber, vínber, smá súkkulaði og kókos.
Berið svo fram með rjóma ef þið viljið.