Það er einfalt og fljótlegt að útbúa góðar muffins. Þar sem muffins geymast líka vel í frysti, er gott að grípa í þær þegar gesti ber að garði. Í þessari uppskrift eru notaðar maukaðar döðlur ásamt smá hunangi í staðin fyrir sykur. Ég læt líka dökka súkkulaðibita í uppskriftina, en þeim má líka sleppa eða nota alveg sykurlaust súkkulaði í staðin.
2 bollar gróft spelt
4 msk kakó, dökkt og lífrænt
3 tsk vínsteinslyftiduft
1 tsk sjávarsalt
1 tsk vanilluduft
2 egg
6 msk hunang
8 msk olía (kókos eða ólífu)
1 bolli döðlur (gróft saxaðar)
1/2 bolli jógúrt eða ab mjólk.
2-3 msk appelsínubörkur rifinn (um 1/4 af appelsínu)
50 g möndlur eða hnetur saxaðar (má sleppa)
100 g 70% dökkt súkkulaði gróft saxað
Blanda saman öllum þurrefnum í skál.
Í annari skál blanda vel saman eggjum, hunangi og olíu.
Í matvinnsluvel þarf að vinna vel saman döðlur og ab mjólk, þannig að það verði gott mauk. Mér finnst best að láta döðlurnar liggja í bleyti í volgu vatni í smá stund áður. Þær vinnast alltaf betur þannig. Maukinu er svo blandað saman við hinn vökvann.
Blanda vökvanum þá saman við þurrefnin og bæta í berki, hnetum og súkkulaði. Hræra vel í með sleif. Ef degið er of þykkt, þá getur verið gott að bæta 1-2 msk af appelsínusafa út í, eða auka við jógúrt eða ab.
Setja deigið í muffinsform og baka við 180° í 15 -20 mínútur. Þetta ættu að verða 15-20 muffins.
Sunday, April 15, 2012
Appelsínumuffins með súkkulaðibitum
Labels:
Kökur og sætindi
Saturday, April 14, 2012
Hnetusmjörsbitar
Stundum er bara svo gott að eiga eitthvað gott í til að narta í sem er hæfilega sætt en samt ekki of óhollt. Þessir bitar eru hráir og fullir af hollustu. Bitarnir geymast í 1-2 vikur í kæli.
2 1/2 bolli tröllahafrar
1/2 bolli sólblómafræ (gott að rista þau á pönnu fyrst)
1/2 bolli rúsínur og gojiber (gott að leggja í bleyti í volgt vatn í nokkrar mínútur)
1/2 bolli caco nibs (má sleppa)
2/3 bolli hnetusmjör (hreint t.d. frá Himneskt)
1/2 bolli agave
Blanda saman höfrum, fræjum, rúsínum, berjum og cacao nibs í skál. Hræra saman hnetusmjöri og agave. Blanda svo saman við þurrefnin. Þrýsta blöndunni vel ofan í mót og kæla í 1-2 klst. Skera í hæfilega bita og pakka þeim vel inn.

Kökur og sætindi,
Nestisboxið
Bakað haframjöl með banana og ávöxtum
Mín litla dama er ekkert allt of hrifin af hafragraut. Hér má hins vegar segja að gamli góði hafragrauturinn sé kominn í annan búning, sem að mín kunni betur að meta og aðrir á heimilinu voru alsælir með þessa tilbreytingu. Það er hægt að leika sér með hráefnið í þessari uppskrift. Ég notaði bláber, en litlu skvísu fannst þau dáldið súr, þannig að ég hugsa að ég noti jafnvel bara epli næst.
2 bananar (mega vera vel þroskaðir)
1 1/2 bolli bláber frosin eða fersk
1/4 bolli agave sýróp eða hunang
1 bolli haframjöl
1/4 bolli valhnetur gróft saxaðar
1 tsk vínsteinslyftiduft
1tsk kanill
smá salt
1 bolli mjólk eða soyjamjólk
1 egg
1 tsk vanilluduft
Skera bananana í sneiðar og dreifa þeim á botninn á eldföstu móti. Setja hluta af bláberjunum yfir. Strá helmingnum af kanilnum og smá af agave sýrópi. Skella þessu inn í ofn á 180 ° í nokkrar mínútur. Á meðan er allt þurrefnið sem er eftir sett saman í skál og blandað vel. Í aðra skál fer allur vökvi og blandast vel saman, þ.e. sýróp, mjólk og egg.
Nú er formið tekið út úr ofninum og þurrefninu hellt yfir bananana þar. Vökvanum er svo hellt jafnt og rólega yfir allt saman. Strá svo restinni af bláberjunum yfir.
Baka í 20 mínútur við 180°.

Morgunverður
Tuesday, April 3, 2012
Hollur og góður Chia grautur
Chia fræ eru algjör ofurfæða. Þau eru rík af omega-3 fitusýrum, ásamt því að vera mjög próteinrík. Það er í raun allt of mikið að telja upp hér allt sem þau eiga að gera fyrir okkur, þannig að ég bendi á þessa frétt frá Heilsuhúsinu um Chia-fræin. Fræin er hægt að nota í alla mögulega matreiðslu. Sjálf er ég nýfarin að fikra mig áfram í notkun þeirra. Set stundum 1 skeið út í þeytinginn minn á morgnana eða í hafragrautinn. Nú er ég hins vegar farin að gera graut úr fræjunum, sem að mér finnst alveg rosalega góður. Hann er líka svo einfaldur.
1/2 bolli kalt vatn
4 msk chia fræ
Ég blanda þessu bara saman í skál á morgnana og leyfi þessu að standa rétt á meðan ég skelli mér í sturtu. Þetta þarf að fá að standa í ca. 10 mínútur, þá þykknar þetta og verður gelkennt (minnir dáldið á sagógrjón).
1/2 epli skorið í litla bita
2-3 msk rúsínur
2 msk muldar valhnetur
smá kanill
1/2 tsk hunang eða agave.
Bæti þessu öllu út í og blanda saman.
Þetta er virkilega hollur, frískandi og saðsamur morgunverður.

Sunday, March 11, 2012
Klattar
Þetta er nú ekki svona beint uppskrift heldur meira hugmynd um hvernig hægt er að útfæra klatta úr hinum ýmsu afgöngum. Í sveitinni í gamla daga voru stundum búnir til svona kartöfluklattar úr afgangs kartöflum og stundum var bætt einhverju kjöti eða hrísgrjónum út í. Þar sem ég vil hafa allt frekar hollt þessa dagana og sem mest hrein hráefni þá ákvað ég að reyna að útfæra þetta á annan hátt. Ekki það að þetta hafi ekki verið hollt í sveitinni á sínum tíma, en mig langaði bara að breyta aðeins. Það er hins vegar hægt að nota nánast hvaða hráefni sem er. Þetta getur því hentað þeim sem ekki vilja kjöt líka. Grunnurinn samanstendur af sætum kartöflum, lauk, eggjum og spelti. Svo er hægt að bæta við t.d. kjúkling, hrísgrjónum, grænmeti, baunum og öllu mögulegu kryddi. Aðalmálið er að gera deig sem ekki verður of blautt en samt þannig að það hangi vel saman. Degið er síðan mótað í höndunum í lítil buff sem eru svo steikt á pönnu.
Þau hráefni sem ég notaði í klattana hér á myndinni eru:
Sætar kartöflur
Laukur
Afgangur af kjúkling í litlum bitum
Salt og pipar
Timian
Spelt ca. 2- 3 msk
2 egg
Mikilvægt að kartöflurnar séu mjög smátt skornar og ágætt að stappa þær gróflega fyrst. Blanda svo bara öllum hráefnunum saman. Móta lítil buff með höndunum og steikja við vægan hita á pönnu upp úr smjöri og kókosolíu. Bera svo fram með góðu salati.

Grænmetisréttur,
Nestisboxið,
Smáréttir
Subscribe to:
Posts (Atom)